tag:blogger.com,1999:blog-21683965864005656992024-02-20T11:34:17.403-08:00Einfaldlega betra lífUnknownnoreply@blogger.comBlogger17125tag:blogger.com,1999:blog-2168396586400565699.post-73052413128403204412017-03-06T07:28:00.001-08:002017-03-06T07:30:05.451-08:00Massa Mars - lyftingar daglega
Áskorunin fyrir mars mánuð er lyftingar með eigin þyngd daglega. Að byrja að lyfta er eitthvað sem hefur staðið til hjá mér lengi svo ég er mjög spennt fyrir þessari áskorun. Reyndar er ég spennt fyrir þeim öllum, en jæja.
Mikilvægt að hafa æfingar daglega
Þegar ég hugsaði fyrst um þetta ætlaði ég að hafa lyftingar annan hvern dag svo það yrðu 3-4 sinnum í viku. En fyrir stuttu las ég þessa færslu á Zen Habits þar sem Leo talar um að best væri að gera hreyfingu að daglegum sið frekar en 3-4 sinnum í viku. Þannig væri auðveldara að muna og líklegra að vaninn haldist. Eftir að ég las það ákvað ég að gera hreyfingu að daglegum sið og skrifa það hjá mér í dagbókina mína. Svo þegar kom að því að gera þetta lyftingaplan varð það auðvitað að vera lyftingar á hverjum degi líka.
Planið
Þar sem ég ætla að lyfta á hverjum degi má planið ekki vera of mikið fyrir hvern dag. Þess vegna setti ég saman plan þar sem eru bara tvær æfingar á dag. Ég skoðaði aðeins hvaða vöðvahópar eru notaðir í hverri æfingu og raðaði þeim þannig saman að vöðvarnir fá hvíld einn dag á milli. Það skiptir kannski ekki svo miklu máli þar sem ég er ekki að nota lóð og líkaminn minn ræður eflaust ágætlega við álagið en þetta kemur vel út finnst mér. Planið skiptist á 6 daga, ég set nöfnin á ensku líka ef þið viljið fletta þeim upp til að sjá nákvæmar skýringamyndir.
Niðurstig og planki á olnbogunum // Lunges and elbow plank
Hnébeygjur og dýfur // Squat and tricep dips
Planki og bakæfing // Plank and bird-dog exercise
Brú og fjallganga // Bridge and mountain climbers
Upphífing og magaæfing // Pull-ups and dead-bug exercise *
Hliðarplanki og flugvélaæfing // Side plank and airplane pose exercise
Hér er planið uppsett í dagbókinni minni. Undirstrikað hvaða æfing er fyrir hvern dag.
Flestar þessarra æfinga fékk ég ráðlagt hjá sjúkraþjálfaranum mínum en þær henta eflaust flestum. Þær leggja mikið áherslu á bak og marga vöðvahópa í einu.
*Smá vandræði með upphífingar
Ég hafði ekki hugsað upphífinga æfinguna alveg til enda en ég á ekki upphífingastöng. Ég á heldur ekki borð sem ég get notað en ef þið vissuð ekki þá er hægt að leggjast undir borð og hífa sig upp á brúninni. En ég get ekkert gert upphífingu hvort eð er svo ég byrjaði bara á að gera undirbúningsæfingar fyrir upphífingu. Það var "bent over dumbbell row" með epladjúsbrúsa fylltum með vatni. Hann vegur tæplega 4 kg sem var aðeins of létt svo næst mun ég útbúa aðeins þyngri lóð. Þetta voru einu vandræðin sem ég lenti í en allar hinar æfingarnar gengu mjög vel.
Finn strax mun
Í dag er 6. mars svo ég er búin að fara í gegnum allt planið einu sinni. Strax á fjórða degi fann ég mun á mér og leið mjög vel í líkamanum. Ég veit þetta er ekki mikil líkamsrækt en ef samanburðurinn er engin líkamsrækt þá finnst mér þetta bara nokkuð gott!
Heil æfing á kortéri
Ég byrja á stuttri upphitun, aðeins að fá púlsinn upp og hita líkamann. Ég geri svo 3 umferðir af báðum æfingum og misjafn hvað hentar að gera margar endurtekningar í einu. Með plankann tek ég tímann og byrjaði með mínútu en hálfa mínútu fyrir hliðarplanka. Ég hvíli stutt á milli umferða og hef vatnsglas við höndina. Þegar ég er búin teygji ég eða geri stutta jógarútínu. Eftir það er tilvalið að gera hugleisðlu ef maður hefur tíma.
En allt þetta ætti að nást á undir fimmtán mínútum. Og þetta eru ekki svo mikil átök að ég þurfi að fara í sturtu. Þannig að svo þó ég væri ekki búin að gera æfingarnar og væri að fara að sofa, taka þær svo stuttan tíma að ég get eiginlega ekki réttlætt það að svindla.
Mínimalísk líkamsrækt
Það sem ég dýrka við þetta er að þú þarft ekki að fara í ræktina til að hugsa vel um líkamann þinn. Að fara í ræktina er ekki ódýrt og það krefst tíma og fyrir foreldra, pössun fyrir börn. Þannig að æfingar heima geta verið frábær kostur fyrir marga, mig þar með talda. Og fyrir þessar æfingar þarf engin tól eða tæki.
Engin afsökun
Ef þér finnst þetta spennandi er ekkert að stoppa þig! Það þarf ekki að vera fyrsti dagur mánaðarins og þú þarft ekki heldur að taka heilan mánuð. Byrjaðu bara í dag og sjáðu hvort þér líði ekki betur.
Unknownnoreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2168396586400565699.post-2469985809639818612017-02-28T07:00:00.005-08:002017-03-04T04:18:22.938-08:0028 dögum síðar - mánuður án samfélagsmiðla
Þessi tilraun hefur verið mjög áhugaverð og margt komið á óvart. Fyrstu dagana fann ég mikið fyrir því að vera ótengd samfélagsmiðlum en eftir því sem á leið minnkuðu áhrifin. Ég var hálf eirðarlaus og tók til og þreif heilmikið. Ætli ég hafi ekki verið svo upptekin áður af tölvunni eða símanum að ég hafi ekki verið að horfa almennilega í kringum mig.
Ennþá mikið að gera
Ég bjóst hálfpartinn við því að þegar ég hætti á samfélagsmiðlum myndi ég hafa ótrúlega mikinn aukatíma. En svo var ekki. Í staðinn tók ég betur eftir því hvað tímanum mínum var mikið ráðstafað. Sem var gott og slæmt að uppgötva. Gott að vita að ég var ekki að sóa öllum tímanum mínum í hangs á netinu en það þýðir líka að verkefnið að einfalda lífið heldur áfram og krefst meiri athygli og meðvitundar. Ég er sannfærð um að KonMari átakið sem ég ætla að klára líka fyrir sumarið og fleiri "slow living" tilraunir muni hjálpa mikið til.
Meira samband við fólk
Ég held að margir haldi af ef þeir væru án samfélagsmiðla væru þeir algerlega útúr og myndu missa tengsl við fólk. En það var ekki mín reynsla. Þann 31. janúar höfðu nokkrir samband við mig á messenger til að láta mig fá símanúmerið sitt og vera viss um að við gætum haldið sambandi utan Facebook sem var mjög fallegt að sjá. Síðan voru tveir viðburðir skipulagðir á Facebook sem vinir og kunningjar létu mig vita af svo ég myndi ekki missa af. Á móti hafði ég líka meira samband við fólk og hringdi og fór í heimsókn. Auðvitað er þetta eitthvað sem er vel hægt að gera án þess að hætta á samfélagsmiðlum en ég held að samfélagsmiðlanotkun búi til aðeins falska ímynd um að maður sé í tengslum við fólk og þess vegna hafi maður minna samband við vini og fjölskyldu.
Meiri hugarfriður
Eitt af því sem ég hef gert undanfarin ár er að minnka hversu mikið af upplýsingum ég tek inn. Þannig hlusta ég aldrei á útvarp, ekki heldur í bíl en þó stundum hlaðvörp eða hljóðbækur. Við horfum ekki á sjónvarpsdagskrá. Ég les ekki mikið af fréttum, allavega ekki daglega. En ég hafði ekki sérstaklega yfirfært þetta á samfélagsmiðla. Eftir mánaðarpásu tek ég eftir því að það er meiri friður í huganum þegar ég er ekki að melta pælingar og vangaveltur alls og allra. Það er klárlega eitthvað sem ég vil halda í framvegis.
Minni kvíði
Undanfarna mánuði hef ég verið meira kvíðin en vanalega. Líklega er það vegna álagsins sem fylgir því að eiga nýlega barn en líka höfum við flakkað aðeins á milli landshluta og dvalið í stakar vikur nokkrum sinnum vegna vinnu mannsins míns og það hefur örugglega eitthvað hlutverk þar líka. En seinni hluta febrúar hef ég varla fundið fyrir kvíða! Þetta er eitthvað sem fagfólk talar um í meira mæli, að mikilli notkun samfélagsmiðla fylgi kvíði en ég hafði ekkert ímyndað mér að það ætti við um mig. Þar til núna.
Quit Social Media - TED talk
Vinkona benti mér á þetta TED erindi um að hætta á samfélagsmiðlum. Þarna talar Dr. Cal Newport um 3 helstu ástæður sem fólk gefur fyrir því að það geti ekki hætt á samfélagsmiðlum og hvernig þær staðhæfingar standast ekki. Þarna er margt áhugavert sem hann talar um og ég mæli með að horfa: Quit social media | Dr. Cal Newport | TEDxTysons
Hvað ég ætla að gera í framhaldinu
Það er öruggt að segja að þessi mánuður hefur fengið mig til að vilja breyta samfélagsmiðlanotkun minni til frambúðar. Ég mun ekki hætta alveg, allavega ekki núna, en minnka fyrrum notkun mjög mikið. Það er ýmislegt sem ég vil forðast eins og heilalaust skroll niður fréttaveituna; lesa facebook um leið og ég vakna og byrja daginn á alls konar pælingum sem ég hefði vel geta verið án; hangs í tölvunni þegar ég ætti að vera að gera eitthvað annað eins og elda mat, sinna börnum og heimili eða bara slaka á í alvörunni (facebook hangs er ekki slökun). Til að lágmarka líkur á að þetta fari að gerast aftur ætla ég að gera eftirfarandi.
Nota hópa áfram
Nokkrir hópar á Facebook eru í uppáhaldi hjá mér og ég geri ráð fyrir að taka þátt í umræðum þar áfram. Ég hef gaman að því að læra eitthvað nýtt og spjalla og kynnast nýju fólki með svipuð áhugamál. Eins hef ég líka gaman af því að benda á áhugaverðar greinar eða efni sem ég les með fólki sem hefur áhuga svo ég mun halda því áfram.
Unfollow
Ég ætla að segja mig úr hópum sem ég hef ekki lengur gagn eða gaman af og hætta að fylgja síðum og fólki sem ég tengi ekki við lengur. Sama á við um Snapchat og Instagram að ég ætla að af-fylgja því sem ég hef ekki gaman af lengur.
Samfélagsmiðlar á ákveðnum dögum
Í framhaldinu sé ég fyrir mér að hafa ákveðna daga þar sem ég nota samfélagsmiðla. Það er vel hægt að fylgjast með því sem fram fer án þess að kíkja inn á hverjum degi. Það kemur betur í ljós eftir því sem á líður hvað hentar best en ég sé fyrir mér tvo daga í viku sem samfélagsmiðladaga.
Blogga meira
Eitt af því sem ég geri hvað mest á samfélagsmiðlum er að deila allskonar pælingum um mínimalískan lífsstíl, uppeldi, núvitund eða fleira í þeim dúr. Ég ætla að byrja að birta þær frekar hér á þessu bloggi og hinni bloggsíðunni minni Kæra vinkona.
Árlegt frí
Ég gæti vel hugsað mér að taka svona pásu á hverju ári svo ég stefni að því að gera þetta aftur í febrúar á næst ári.
Skrítið að koma aftur
Það kvikna blendnar tilfinningar að hugsa um að koma aftur á samfélagsmiðlana. Þessi mánuður hefur virkilega gefið mér tíma til að velta því fyrir mér hvað það er sem samfélagsmiðlar gefa mér og hverju þeir ræna mig. Vonandi tekst mér í framhaldinu að nota þá þannig að það henti mér sem best.
Unknownnoreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2168396586400565699.post-70650732228721446452017-02-02T07:01:00.001-08:002017-02-02T07:07:06.457-08:00Friðsæld í febrúar / engir samfélagsmiðlar
Áskorunin fyrir febrúar mánuð er að taka frí frá samfélagsmiðlum. Þetta er sú áskorun sem hefur fengið mestu viðbrögðin myndi ég segja. En að sama skapi hafa margir ákveðið að taka henni líka!
Í dag eru samfélagsmiðlar svo stór partur af lífi okkar flestra að það setur stórt skarð í reikninginn að taka þá út. En þeir eru ekki lífsnauðsynlegir svo það er áhugavert að sjá hvernig lífið er án þeirra í smátíma.
Það verður ekki hjá því komist að segja að ég noti Facebook frekar mikið. Bæði er ég stjórnandi ýmsa hópa en svo hef ég líka mjög gaman af því að fræðast um nýja hluti og spjalla við fólk með svipuð áhugamál þar í þeim fjölmörgu hópum sem hafa myndast um alls konar málefni - allt frá súrdeigsbrauðgerð til barnauppeldis.
Hverjar eru reglurnar
Ég skrái mig út af Facebook og eyði appinu úr símanum. Mér finnst óþarfi að breyta lykilorðinu og láta manninn minn hafa það því ég er alveg ákveðin í þessu.
Instagram fer líka. Twitter líka. Ég nota Twitter reyndar ekki neitt en áður þegar ég hef farið í Facebook-hlé hef ég ákveðið að kannski ætti ég að nota Twitter meira. Nei, ekki núna.
Á síðustu stundu ákvað ég að sleppa Messenger líka en það er aðal samskiptamiðillinn sem ég nota. Kannski þarf ég að svindla aðeins og nota Messenger til að tala við fólk sem ég finn ekki á annan hátt.
Ég ætla að halda snapchat til að fylgjast með mínimalista snappinu (sc: minimalistar) en ég má ekki snappa sjálf. Eða, nei bíddu aðeins. Ég ætla að sleppa snapchat líka. Fyrst ég ætla að gera þetta, þá geri ég þetta alveg! Þið gefið mér bara samantekt á því besta sem ég missti af.
Í staðinn ætla ég að hringja, senda sms eða tölvupósta til að hafa samband við fólk en aðallega hitta fólk frekar en að spjalla í gegnum síma/net.
Ég setti sérstaka prófíl mynd á Facebook þar sem stendur að ég sé í fríi til 1. mars. Hana gerði Elísa vinkona mín sem er einnig með í þessu fríi.
Hverju ég býst við
Ég býst við því að upplifa dagana lengri. Að kíkja af og til á símann og sjá hvað er að gerast eyðir alveg heilmiklum tíma. Hver kannast ekki við að ætla að sjá hvað klukkan er á símanum en sjá svo ný skilaboð og áður en þú veist af er kaffið orðið kalt og þú ert komin lengst í burt í netheiminum? Og veist ekki ennþá hvað klukkan er.
Ég sé fyrir mér að eyða eitthvað af þessum nýfengna tíma í að blogga en annars bara að lesa bækur, horfa á strákana mína, fara út að ganga, mála, prjóna og almennt vera til í hinum raunverulega heimi.
Vonandi mun ég ekki missa af neinum viðburðum á meðan ég er í burtu! Ég held að vinir mínir muni nú samt alveg eftir mér og láti mig vita.
Hvað ég vonast til að læra
Eins og með allar áskoranirnar vil ég læra eitthvað nýtt. Í febrúar vonast ég til að sjá betur hvað það er við samfélagsmiðla sem ég mun sakna og hvað ekki. Og hvernig ég get notað þá í framhaldinu til að njóta þeirra og lífsins sem mest.
Dagur eitt og tvö
Þar sem ég skrifa þetta 2. febrúar er ég komin tvo daga inn í mánuðinn. Í ófá skipti hef ég opnað símann af vana en séð svo að það er ekkert Facebook app til að gleypa tímann minn. Það er mjög skrítin tilfinning að hafa ekki Facebook. Eins og að stór hluti af heiminum mínum sé í gangi sem ég er ekki að taka þátt í. En á sama tíma er það léttir og ég upplifi ákveðna ró.
Ég ætlaði að skrifa þessa færslu í lok janúar til að taka saman hvernig ég sæi febrúar fyrir mér áður en hann byrjaði en er aðeins sein. Nú ætla ég að birta þennan pistil og senda hann út í kosmósið. Ég mun ekki deila honum og fylgjast með fólki læka og kommenta. Eins og í gamla daga.
Unknownnoreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2168396586400565699.post-23639608445121213792017-01-26T07:09:00.002-08:002017-01-27T15:10:57.137-08:00Enginn sykur í janúar
Nú er langt liðið á janúar og margir sykurlausir dagar að baki. Hér vil ég deila reynslu minni og ástæðum fyrir þessari áskorun.
Af hverju sykurlaus?
Ég held það þurfi ekki mikið að útskýra af hverju einhver myndi prófa að taka út sykur enda er öllum kunnugt hvað sykur er slæmur fyrir okkur. Þess vegna vildi ég prófa að taka út viðbættan (hvítann) sykur.
Planið
Ég fór þó ekki svo langt að lesa á allar innihaldslýsingar í mat sem var ekki augljóslega sætur. Aðallega var þetta til að taka út sætindi, kökur og sykrað gos. Þannig að pulsubrauð var í lagi þó það innihaldi sykur. Ég mátti því borða ávexti, bæði ferska og þurrkaða. Svo leyfði ég sykurlaust gos en ég drekk ekki mikið af því hvort eð er. Dökkt súkkulaði, 70% eða meira, fíkjur og ostar var það sem kom helst í staðinn fyrir annað sykrað möns sem ég var vön (aðallega OREO og suðusúkkulaði). Mér fannst það bara fín tilbreyting. Ég keypti líka oftar jarðaber sem ég geri vanalega ekki og þeirra naut ég í botn!
Reynslan
Eftir nokkra daga þar sem ég þurfti að minna mig á að ég ætlaði að vera sykurlaus þennan mánuð var þetta ekki svo mikið mál. Mér fannst meira að segja auðvelt að fara ísrúnt á Valdísi og fá mér ekki ís.
Nokkrir svindldagar læddust inn sem ég hafði ekki gert ráð fyrir en þegar hugmyndin um það kom upp fannst mér það sjálfsagt - þetta er jú bara gert í tilraunarskyni og til gamans. Fyrsta svindlkvöldið var þegar við hjónin fórum út að borða og ég fékk mér kokteil. Kannski ekki mikið svindl en það var eitthvað sykrað í honum. Næstu svindldagar voru ekki af jafn miklu tilefni og mögulega ekki þess virði.
Núvitund skiptir máli
Í þau skipti sem mig langað mest að svindla var ég þreytt eða pirruð og langaði að tríta mig af því mér fannst ég eiga það skilið.
Við vorum í tvær vikur á Ísafirði þar sem ég var heima með 4 ára og 6 mánaða strákana okkar á daginn á meðan maðurinn minn vann. Þá voru stundum langir dagar og fátt hljómaði betur en að háma í mig heilan pakka af OREO þegar strákarnir voru sofnaðir. En þá kom núvitundin sterk til leiks því þá áttaði ég mig vel á því að ég var að reyna að bæla eða sefa einhverjar tilfinningar/þreytu með mat. Ég eyddi smá tíma í að velta því fyrir mér - eins og ég lærði á núvitundarnámskeiði - og finna aðrar leiðir til að vinna úr þeim. Oft með góðri sturtu, hugleiðslu, göngutúr eða tebolla.
Ég held að það sama megi líklega segja um af hverju við kaupum hluti sem við höfum ekki góð not fyrir. Ef við getum aðeins staldrað við og skoðað hvaðan löngunin til að kaupa kemur held ég að við getum komist hjá flestum óþarfakaupum.
Eftirvæntingin betri en nammið sjálft
Það hefur verið sannað að tilhlökkun er oft stærri þáttur af gleðinni sem fylgir einhverju spennandi. Nákvæmlega þannig upplifði ég það í þau skipti sem ég leyfði mér að svindla. Þegar ég var búin að borða nammið var það ekki nærri því jafn gott og ég hafði séð fyrir mér og eiginlega ekki þess virði að svindla. Ég verð að segja að það kom mér aðeins á óvart.
Hins vegar þegar ég valdi t.d. jarðaber eða fíkjur naut ég þess yfirleitt miklu meira. Ég borðaði það (oftast) með athygli og fannst gaman að velta fyrir mér litum, bragði, áferð og útliti þessara ávaxta.
Taka nesti með í veislu
Ókei, þetta gerðist reyndar ekki í þessum mánuði en mér finnst þetta eiga heima hér. Ég fór í 70 ára afmæli á síðasta ári. Eftir matinn voru bornar fram tertur, svaka rjóma-karamellu-marengs bombur. Mér varð eiginlega illt í maganum að horfa á þær og var frekar södd eftir matinn svo ég hafði ekki mikla lyst. Þá sé ég að ein frænkan í boðinu var með dökkt súkkulaði sem hún var að brjóta til að setja á undirskálina með kaffinu sínu. Fyrir algera tilviljun var ég líka með dökkt, mjólkurlaust súkkulaði með mér og ákvað að fá mér það í staðinn. Svo sátum við tvær og drukkum kaffi og smökkuðum dökka súkkulaðið hvor hjá annarri og töluðum um sykurminna líf. Þá var hún að taka út sykur hjá sér og kom þess vegna með nesti í veisluna. Mjög sniðugt - mér finnst eiginlega nauðsynlegt að fá eitthvað smá sætt með kaffinu.
Lokaorð
Þetta var bara mjög góð mánaðaráskorun og ég lærði ýmislegt. Í framhaldinu mun ég halda áfram að velja hollari kosti þó ég muni alveg leyfa mér ís og OREO öðru hvoru. Er t.d. mjög spennt fyrir vegan Ben&Jerry's sem ég keypti í gær og ætla að borða 1. febrúar!
Unknownnoreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2168396586400565699.post-79883266094282286672017-01-25T07:55:00.000-08:002017-01-27T15:12:21.822-08:00Mánaðarlegar áskoranir í heilt ár
Ég ætla að gera áskorun í hverjum mánuði 2017. Ég minntist á þetta á mínimalista snappinu (SC: 'minimalistar'). Ég fékk hugmyndina frá Leo á zenhabits.net en hér er færslan um hans ár. Hann kallar þetta "Year of living without" og eru allar hans áskoranir þannig að hann neiti sér um eitthvað. Áskoranirnar sem ég hef valið eru margar þannig en ekki allar. Þær eiga það sameiginlegt samt að ég tel að lífið mitt verður einfaldara, ég mun læra eitthvað nýtt eða mér mun líða betur í kjölfarið.
Planið fyrir alla mánuði er ekki alveg fastmótað, þ.e. í hvaða mánuði áskoranirnar verða teknar og enn er möguleiki að einhverjum verði skipt út. Hér eru drögin:
1. enginn sykur (janúar)
2. engir samfélagsmiðlar (febrúar)
3. æfa lyftingar
4. vegan
5. ekkert sjónvarp
6. ekki sitja í sófa
7. ganga frá öllu í húsinu um kvöldið
8. hugleiðsla daglega
9. fara snemma að sofa
10. jóga daglega
11. lesa í 30 mín á dag
12. fara og njóta náttúrunnar á hverjum degi
Uppfært!
Áskoranir sem búið er að skipta út:
13. ekki kaupa neitt (fyrir nr. 7)
14. engin förðun (fyrir nr. 11)
15. vera í sömu fötunum alla daga (fyrir nr. 9)
Síðan ég talaði um þetta hafa tvær vinkonur mínar ákveðið að vera með í "samfélagsmiðlalausum febrúar"! Það mun klárlega vera erfiðasta áskorunin.
Engin förðun mun líklega skiptast út fyrir eitthvað annað, það væri eiginlega of auðvelt fyrir mig.
Vildi deila þessu með ykkur ef einhver vildi kannski prófa, einn, nokkra eða alla mánuði ársins.
Eftir hvern mánuð ætla ég svo að skrifa færslu um af hverju ég valdi þessa áskorun, hvernig gekk og hvað ég lærði.
Hlakka til að sjá hvernig þetta þróast.
Unknownnoreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2168396586400565699.post-41747053391033701372015-12-30T14:45:00.001-08:002015-12-30T14:46:35.903-08:00Hugleiðsla daglega - áramótaheiti 2016
Eftir að hafa lokið námskeiði í núvitund og fundið fyrir góðum áhrifum iðkunarinnar vil ég gjarnan halda henni uppi. Það gekk mjög vel á meðan á námskeiðinu stóð og stuttu eftir en þegar aðhaldið var farið var erfitt að halda henni við. Þess vegna ákvað ég að hafa það sem áramótaheiti. Síðustu ár hef ég tekið áramótaheitin alvarlega og sinnt þeim vel svo ég er ekki hrædd um að þetta fari í vaskinn.
Til að gera heitið líklegt til árangurs hef ég tekið saman nokkrar leikreglur og annað slíkt.
Aðeins má líða einn dagur án hugleiðslu
Þetta skiptir mestu máli þegar maður er að byggja upp vanann. Sagt er að það taki þrjátíu daga að skapa sér nýja siði svo vonandi verður það komið í byrjun febrúar.
Lágmark tíu mínútna hugleiðsla (en allt er þó betra en ekkert)
"Þriggja mínútna hugleiðsla getur haft mikil áhrif, en ef þú hefur engan tíma, þá eru tuttugu mínútur algjört lágmark."
Ég á allavega tíu lausar mínútur á hverjum degi. En ef ekki, þá er allt betra en ekkert.
Stefna að lengri hugleiðslum eða um það bil 40 mínútur
Þegar vaninn er komin ætla ég að gera ráð fyrir 40 mínútum á dag. Eflaust koma dagar sem það gengur ekki upp en það er markmiðið til lengri tíma.
Einn kyrrðardagur á árinu
Á núvitundarnámskeiðinu var einn dagur í kyrrð. Þá voru allir nemendurnir samankomnir í stóru húsi í náttúrunni talsvert fyrir utan Reykjavík. Þar vorum við í fimm klukkustundir án þess að tala, borðuðum, fórum í göngutúr, gerðum hugleiðslur og jóga. Það var mjög nærandi og gefandi dagur og vil ég endurtaka það allavega einu sinni á árinu. Ýmist með því að fara á sérstakan kyrrðardag eða endurskapa hann bara sjálf.
Mismunandi hugleiðslur
Hægt er að gera margar mismunandi hugleiðslur; gangandi, metta (kærleikshugleiðsla), borða með vakandi athygli, skýjaáhorf og ýmislegt fleira. Til að halda fjölbreytni og fá mismunandi upplifanir ætla ég að breyta til reglulega og prófa ýmislegt.
Halda núvitundardagbók
Ég byrjaði á námskeiðinu að halda dagbók og mun halda því áfram. Það er mjög gaman að sjá hve margt maður lærir og upplifir í þessu ferli. Þannig get ég líka séð hversu langt ég er komin miðað við byrjun.
Skrá hverja hugleiðslu á árs-plakat
Sem aðhald og hvatning fékk ég mér stórt dagatalsplakat með öllum dögum ársins og þar ætla ég að merkja við hverja hugleiðslu. Þannig verður gaman að sjá árið fyllast út og fylgjast með árangrinum.
Leiddar hugleiðslur
Til að byrja með sérstaklega ætla ég að gera sem mest af leiddum hugleiðslum. Smám saman líklega æfist þetta og auðveldara verður að gera hugleiðslur án leiðslu.
Ef þið eruð frekar ný í hugleiðslu gæti verið gott að prófa Headspace eða Stop, Breathe, Think, bæði eru til sem forrit í snjallsíma.
Annars er til aragrúi af öðru fríu efni á netinu eftir flotta kennara. Tara Brach er uppáhaldskennarinn minn hingað til og er hægt að finna heilmargar hugleiðslur og fyrirlestra eftir hana á vefsíðunni hennar.
Hlaðvörp um núvitund
Hlaðvörp (e. podcasts) eru alltaf að verða vinsælli og fjölbreyttari. Með því að hlusta á þau má fræðast um nánast hvað sem hugann girnist - þar á meðal núvitund. Mér finnst mjög gaman að læra um áhrif og gagnsemi hugleiðslu og um ýmsar leiðir til að bæta sjálfan sig í henni.
Ég hef hlustað mikið á Tara Brach sem er bandarískur sálfræðingur. Hún talar mikið í anda búddhatrúar um hugleiðslu, tilfinningar og segir líka brandara.
Annar þáttur sem ég hef haft gaman af er On Being. Þeir eru ekki um hugleiðslu en fjalla mikið um meiningu lífsins og oftar en ekki hefur það eitthvað að gera með að staldra við, upplifa og njóta.
Ef hugleiðsla er eitthvað sem þið hafið áhuga á hvet ég ykkur til að prófa eitthvað af þessu sem gæti hentað ykkur. Einnig eru allir áhugasamir velkomnir í spjallhópinn Áhugafólk um núvitund á Facebook en þar eru ýmsar umræður sem tengjast hugleiðslu, námskeiðum og margt fleira.
Gleðilegt nýtt (hugleiðslu) ár!
Unknownnoreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2168396586400565699.post-39606238951939204732015-11-26T08:35:00.000-08:002015-11-26T08:58:21.398-08:00Hvað hefur mínimalískur lífstíll að gera með sparnað og umhverfisvernd?
Umhverfisvernd, nýtni, minnka sóun af ýmsu tagi, fækka umbúðum, sparnaður og endurvinnsla.
Þessu er gjarnan öllu hent saman í eina súpu og þetta talið vera samofið og órjúfanlega partur hvert af öðru.
Ég vil ekki meina það og ætla aðeins reyna að setja í orð hvers vegna.
Fyrir flesta myndi mínimalískur lífstíll þá þýða að geyma ekki öll ósköpin af dóti og drasli "bara vegna þess" eða "gæti mögulega þurft að nota einhverntímann". Fyrir flesta myndi það líka þýða minni tíma varið í verslunum því þeir hafa áttað sig á því að þeir 'þurfa' ekki fullt af meira dóti.
Unknownnoreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2168396586400565699.post-30603388446865262702015-11-15T16:13:00.000-08:002015-11-16T10:55:15.835-08:00Tvö pör af spariskóm - hvernig getur það talist mínimalískt?
Að lifa í anda naumhyggju getur vissulega talist sem mínimalískur lífsstíll ef maður hefur gaman af því. En að lifa mínimaliskum lífsstíl hefur víðari skilgreiningingu og því ekki það sama og naumhyggja.*
*Ég tek það fram að enn hef ég ekki séð góða útskýringu á orðinu naumhyggja sem lífsstíll en geri ráð fyrir að það sé á þá leið að "lifa aðeins með það sem þarf eða telst nauðsynlegt".
Unknownnoreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2168396586400565699.post-43822203040496583142015-11-11T04:14:00.002-08:002015-11-11T05:57:41.452-08:00Spurt og svarað
Í september birtist grein eftir Ástu Andrésdóttur í blaðinu Eftir Vinnu sem gefið er út af Viðskiptablaðinu. Greinin er unnin úr svörum mínum við eftirfarandi spurningum en hér birti ég svörin í fullri lengd.
Skrifuð 16. ágúst 2015
Út á hvað gengur minímaliskur lífsstíll?
Mínimalískur lífsstíll er að hafa í lífi þínu aðeins þá hluti sem þú þarft og nýtur þess að hafa. Laus við óþarfa. Það eru engar reglur um hvað á að eiga mikið af hinu eða þessu.
Hann snýst ekki um að eiga eins lítið og maður getur eða að eiga bara nauðsynjar, heldur að það sem þú átt gefi lífi þínu gildi. Þess vegna er mínimalískur lífsstíl jafn ólíkur á milli einstaklinga og við erum mörg.
Hverjir eru kostir hans?
Lífið verður einfaldara. Að elda, þvo þvott, þrífa húsið, pakka í ferðalög eru allt athæfi sem geta verið leiðinleg og langdregin ef líf þitt er fullt af óþarfa. Með því að losa sig við óþarfan verður flest öll dagleg verk auðveldari og tímanum getur verið varið í það sem skiptir þig mestu máli.
Ef barnaherbergið er ekki yfirfullt af leikföngum er auðveldara fyrir börnin að leika sér, einbeita sér í leik og líklegra að þau geti sjálf gengið frá.
Ef þú veist hvað þú átt og þarft ólíklegar að leita að einhverju. Tímanum er varið með fólki sem þú elskar og að gera það sem skiptir þig máli.
Hafi þér tekist að mínimalisera fataskápinn þinn er auðvelt að pakka fyrir ferðalög eða velja föt fyrir sérstök tilefni. Ekki “fullur skápur af engu til að fara í”.
Hvað telur þú að skýri mikla aukningu á áhuga fólks á því að losa sig við óþarfa dót og einfalda líf sitt?
Aukin umhverfisvernd hefur talsverð áhrif er ég viss um. Einnig aukin vakning í því að við vinnum of mikið og aðeins til að eiga stærra hús eða fleiri og flottari hluti. En annars þori ég ekki alveg að segja hvað það er. Kreppan hefur eflaust haft einhver áhrif á fólk til að segja nei takk við ofneyslu og efnishyggju.
Hvernig kviknaði áhugi þinn á þessu málefni?
Ég byrjaði að lesa bloggið Zen Habits þegar ég var að leita að ráðum til að vakna snemma og þar fyrst sá ég talað um að eiga færri hluti og lifa einfaldari lífi. Þá bjó ég í lítilli íbúð með alltof mikið af dóti og stórum húsgögnum. Mér fannst ég vera “í kremju” í íbúðinni minni. Einn daginn ákvað ég að nóg væri komið og að ég skyldi losa mig við allt þetta “drasl”. Ég tók myndir inn í alla skápa og hillur til að geta seinna séð árangurinn. Þegar við fluttum stuttu seinna fór stór hluti af kössunum í Góða Hirðinn og margir pokar í Rauða Krossinn.
Hefur mínimalískur lífsstíll breytt lífi þínu á einhvern hátt? Hvernig þá?
Já! Ég kaupi minna og vel gæði framyfir magn. Ég hef losað mig við ca. 75% af fataskápnum. Ég eyði minni tíma í að spá í hlutum sem mig langar til að kaupa. Ég reyni að njóta augnabliksins meira og kann betur að meta það þegar ég hitti fólk sem mér þykir vænt um. Þegar við ferðumst, hjón með barn, er meira en nóg að hafa 2 handfarangurstöskur. Þegar við höldum veislur þá yfirleitt afþökkum við gjafir og ég reyni að gefa mínimalískar gjafir.
Ég upplifi minni græðgi og öfund. Ég er ánægð með það sem ég á og veit að fleiri eða flottari hlutir er ekki það sem skiptir máli þegar kemur að hamingju minni.
Hvað kom til að þú stofnaðir Facebook hópinn?
Ég og Magnea vinkona mín höfðum rætt þessa nýju lífsýn okkar í nokkurn tíma (sumarið 2013) þegar við vorum báðar í fæðingarorlofi. Ég var þá að fara að flytja og Magnea var nýbúin að selja annan fjölskyldubílinn sem varð til þess að við veltum óþarfanum og einfaldari lífsstíl fyrir okkur. Við vorum báðar meðlimir í ýmsum Facebook hópum tengdum barneignum og uppeldi svo umræður á netinu var eitthvað sem okkur fannst sniðugt og gagnlegt. Okkur þótti því sjálfsagt að stofna hóp til að spjalla um þetta líka ásamt öllum sem kynnu að hafa áhuga.
Hvenær var það?
Sumarið 2013.
Hvað hefur hópurinn marga notendur núna?
2,454 (14. ágúst). Á einum mánuði hafa bæst við rúmlega 2000 notendur í kjölfar greinar sem birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 11. júlí. [Uppfært: rúmlega 5400 meðlimir 11. nóvember 2015]
Hvers konar umræður fara fram þar? Hvað brennur á fólki?
Ýmist er fólk að deila áhugaverðum umfjöllunum um mínimalískan lífsstíl eða leita ráða um góðar leiðir til að sigta út óþarfa dót. Margir segja frá því hvað þau upplifi mikinn létti við það að einfalda líf sitt á einhvern hátt - oft í tengslum við ferðalög, þrif eða tiltekt.
Ef fólk er nýbyrjað að velta fyrir sér einfaldari lífsstíl er mjög algengt að fólki finnist það yfirþyrmandi verkefni að taka húsið sitt í gegn eða losa sig við hluti sem það tengist tilfinningalega. Þegar það kemst í gegnum fyrstu skrefin er oft erfitt að hætta og ánægjan yfir árangrinum kemur hratt.
Getur þú mælt með bókum eða vefsíðum tengdum efninu?
Bókin “The Life Changing Magic of Tidying Up, Marie Kondo” er frábær til að koma manni af stað í að losa sig við dót.
Zen Habits bloggið eftir Leo Babauta
Becoming Minimalist bloggið eftir Joshua Becker
The Minimalists bloggið eftir Joshua Fields Millburn og Ryan Nicodemus
Light by Coco á YouTube
Heimildarmyndin “The True Cost” um efnishyggju, sóun, mengun og illa meðferð á fólki í fataframleiðsluiðnaðinum. Mynd sem allir ættu að horfa á. Hún er á NetFlix.
Heimildarmyndin “I’m Fine, Thanks” um fólk sem fór einstakar leiðir til að finna gleðina í lífinu
Marie Kondo aðferðin. Hvert er inntak hennar?
KonMari aðferðin gengur út á að fara í gegnum allt dótið sitt og losa sig við hvern hlut sem ekki vekur gleði hjá manni. Taka á einn flokk hluta fyrir í einu t.d. föt, safna þeim öllum saman á einn stað og meta hvern og einn. Ef þú ert ekki handviss um leið og þú tekur hann upp að hluturinn gefi þér ánægju skaltu losa þig við hann. Þannig er farið í gegnum alla hluti á heimilinu. Flokkarnir sem hún nefnir eru föt, bækur, smámunir og tilfinningalegir hlutir. Smámunir innihalda allt frá raftækjum til handklæða til bréfaklemma. Tilfinningalegir hlutir geta verið t.d. ljósmyndir, fyrstu barnaskórnir eða gamlar dagbækur.
Marie Kondo, höfundur aðferðarinnar, segir að best sé að gera þetta allt í einum rykk eða á um það bil 6 mánuðum. Þannig muni maður vera laus við óþarfa drasl það sem eftir er ævinnar.
Hefur þú prófað hana og þekkirðu fleiri?
Ég las bókina bara núna í júlí. Við erum í sumarvinnu úti á landi en búum í Garðabæ svo ég hef ekki komist í það. Sem betur fer kannski - annars hefði sumarið mitt farið í að taka til! En ég stefni á að byrja þegar við komum til baka og vera búin um áramót.
Vinkona mín Guðrún las bókina um aðferðina “The Life Changing Magic of Tidying Up, Marie Kondo” og hafði þetta að segja um hana:
Guðrún Baldvinsdóttir: “Ég las hana um daginn og hún breytti lífi mínu! Hún segir að maður eigi að koma við hvern hlut og velta fyrir sér hvort hluturinn skipti mann máli, spyrja sig: "Does it spark joy?" Núna nota ég þessa setningu á allt í lífi mínu! Til hvers að eiga eitthvað eða gera eitthvað sem veitir manni ekki ánægju? Ég er búin að fara yfir fötin mín, bækurnar mínar og snyrtivörurnar mínar með þessari aðferð og mér líður miklu betur í íbúðinni minni. OG það sem meira er að eftir að ég byrjaði á þessu hefur það haft áhrif á fólkið í kringum mig og þau eru líka byrjuð á þessu. KonMari sagði að það myndi gerast, en ég trúði því einhvern veginn ekki. En viti menn!”
Hvaða fleiri aðferðir eru í boði?
Það eru ekki margar svona vel þekktar aðferðir en ýmsar leiðir sem hafa reynst vel hjá fólki í okkar hóp eru:
Project 333. Veldu 33 flíkur, meðtalið skór, skartgripir (ekki þeir sem þú notar dagelga) til að nota næstu 3 mánuðina. Ef þú vilt ekki losa þig við fötin sem þú velur ekki geturðu geymt þau. Að þeim tíma liðnum geturðu skipt út, ýmist fyrir eitthvað sem þú geymdir eða keypt eitthvað sem vantar.
Hafa tilbúna kassa fyrir hluti sem á að losa sig við. Til dæmis einn fyrir Góða Hirðinn í Sorpu, Einn fyrir Rauða Krossinn og einn fyrir Konukot. Svo í hvert skipti sem þú finnur einhvern hlut sem þú vilt losa þig við þá veistu nákvæmlega hvar þú ætlar að setja hann.
Setja hluti sem þú heldur að þú getir losað þig við í kassa og merkja með dagsetningu, ef þú hefur ekki opnað kassan í langan tíma (3 eða 6 mánuði) þá má losa sig við kassan.
Pökkunar-partý. Pakkaðu öllu niður í kassa í einu herbergi eða öllu húsinu ef þú ert í stuði. Bara eins og þú myndir gera ef þú værir að flytja. Svo þegar þú þarft að nota einhvern hlut geturðu tekið hann úr kassa. Eftir smátíma geturðu losað þig við allt sem er enn í kassa. (Lesið meira: The Minimalists :: Packing Party)
Ein alveg skaðlaus er að snúa við öllum herðatrjánum í fataskápnum og sjá hversu mörg hafa snúist við aftur eftir 3 mánuði.
Ef maður vill tileinka sér þennan lífsstíl, hvernig er best að byrja?
Til að byrja með er nauðsynlegt að sjá fyrir sér hvernig lífið manns væri með færri hluti. Taka smástund í að ímynda sér heimilið sitt án drasls, enginn óþarfi en bara það sem er nauðsynlegt og það sem er í uppáhaldi.
Svo þegar maður sér að það sé eitthvað til að breyta, of mikið af hlutum í lífi manns, byrja bara smátt að losa sig við. Það sem er oftast auðvelt að losa sig við eru hlutir sem eru ónýtir eða föt sem eru götótt og slitin. Svo eitthvað sem er löngu komið úr notkun en þó hægt að nota. Erfiðara eru hlutir sem eru í notkun en veita manni ekki gleði eða maður myndi vilja hafa öðruvísi. Erfiðast fyrir flesta eru líklega hlutir sem hafa einhverja tilfinningalega tengingu.
Ef þessar setningar eiga við þig gæti verið að smá mínimalismi sé svarið:
“Hlutirnir mínir taka of mikinn tíma (taka til, þrífa, raða, þurrka af...)”
“Ég þarf oft að leita að einhverju”
“Ég á fullt af fötum en á oft erfitt með að ákveða hverju ég vil klæðast”.
Hvaða áhrif hefur það þegar maður hefur aðhyllst mínimalískan lífsstíl í einhvern tíma? Líður manni til dæmis almennt betur? Hverju breytir þetta í stóra samhenginu?
Maður eyðir orkunni í skemmtilegri hluti. Meiri tími með skemmtilegu fólki eða að gera það sem manni líkar mest. Sálfræðingnum Tim Kasser hefur sérhæft sig í efnishyggju og vellíðan. Í samantekt á nokkrum rannsóknum komst hann og teymið hans að því að því meira sem fólk metur efnislega hluti því meira upplifir það óþægilegar tilfinningar eins og þunglyndi og kvíða. Á sama tíma upplifir það færri góðar tilfinningar og sætti með sjálf sig. Þannig má kannski segja að mínimalískur lífstíll geti stuðlað að meiri hamingju.
“We found that the more highly people endorsed materialistic values, the more they experienced unpleasant emotions, depression and anxiety, the more they reported physical health problems, such as stomachaches and headaches, and the less they experienced pleasant emotions and felt satisfied with their lives.” Umfjöllun um hátíðir og vandamál sem fylgja efnishyggju
Hvers vegna eigum við mörg hver svo erfitt með að sjá á eftir hlutunum okkar?
Af því við gleymum því hve auðvelt er að eignast þá aftur.
Hvað er hægt að gera við hlutina sem maður vill losna við?
Sumt er hægt að selja á Facebook sölusíðum eða Bland en það getur verið tímafrekt auðveldast er að gefa þá á eftirfarandi staði:
Rauði krossinn fatasöfnun (gámar á dreif um bæinn og líka á Sorpu)
Föt og skór, heil og sjúskuð, líka nærföt og sokka. Rúmföt (líka sjúskuð og rifin) sængur, koddar.
Konukot
Eskihlíð 4, S. 545-0409 / 861-0400 (Kristín Helga forstöðukona)
Þiggja m.a. handklæði, sápur, snyrtivörur, sjampó og hárnæringu, ilmvötn.
Góði hirðirinn (gámur á Sorpu stöðvum)
Húsgögn, húsmunir, leirtau, gardínur, dúkar, raftæki, leikföng, plötur, dvd, cd, bækur, vídjóspólur.
Þetta snýst svo ekki bara um að henda út heldur líka að gæta þess hvað maður eignast og tekur inn á heimilið, ekki satt? Hvað er gott að hafa í huga í því sambandi?
“Too many people spend money they haven’t earned, to buy things they don’t want, to impress people they don’t like.” —Will Rogers
Ekki kaupa hluti í flýti.
Spyrja sig: “Er þetta eitthvað sem ég þarf - eða eitthvað sem mér finnst ég þurfa að eiga vegna samfélagslegrar pressu?” “Mun þetta gera lífið mitt betra eða er þetta enn einn hluturinn til að þvo, þurrka af, taka til, raða og skipuleggja”
Nær þessi speki til fleiri hliða lífsins?
Algerlega. Það má færa þetta yfir á flest allt í lífi okkar. Velja betur fólk sem maður umgengst, fækka áhugamálum sem maður stundar og einbeita sér betur að því mikilvægasta. Jafnvel matinn sem við borðum! Ef þú ert södd/saddur, hættu þá að borða. Þó þú hafir borgað fyrir allan matinn á disknum á veitingastað þá mun þér ekki líða betur þó þú borðir meira af honum. Einnig má taka til í huganum sínum með því að stunda hugleiðslu.
Eru til einfaldar leiðir til að halda öllu á sínum stað á heimilinu svo að allt verði ekki alltaf í drasli?
Ekki bara taka til - losaðu þig við drasl. Þú þarft ekki að skipuleggja dót sem þú átt ekki.
Eitthvað fleira sem þú myndir vilja segja frá að lokum, tengt mínímalískum lífsstíl?
Um leið og fólk kynnist mínimalískum lífstíl aðeins betur og prófar að lifa með færri hluti mun það ekki vilja fara tilbaka.
Ég vona að þetta hafi svarað einhverjum spurningum sem þið hafið velt fyrir ykkur eða þá að þið hafið lært eitthvað nýtt og haft gaman að.
Þórhildur
Unknownnoreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2168396586400565699.post-38407745182214321682015-09-26T17:38:00.000-07:002017-03-06T12:46:36.786-08:00Bless í bili áhugamál
Ég hef lengi hugsað um að fækka áhugamálunum mínum. Ekki vegna þess að það sé einhver regla sem segir að maður megi bara eiga eitt eða tvö áhugamál. Heldur vegna þess að ég vissi að ég myndi aldrei ná að sinna neinu almennilega ef ég ætlaði að sinna öllum. Fyrst þegar ég hugsaði um þetta fannst mér skelfileg tilhugsun að sleppa einu einasta áhugamáli - mér fannst þau öll svo frábær! Ég hlyti að geta eytt tíma í öll og náð að gera spennandi hluti í þeim öllum. Nei. Tíminn bara leið og leið og öðru hvoru gaf ég mér tíma í eitthvað þeirra. Ef ég var að fara í frí eða upp í bústað tók ég yfirleitt með mér hluti fyrir tvö eða þrjú áhugamál. Oft var það þannig að mér fannst ég þurfa að klára eitthvað sem ég var byrjuð á - þó áhuginn fyrir verkefninu væri löngu farinn. Í dag er ég (að mestu leyti) laus við þá hugsun sem betur fer - ef þú ert ekki að njóta þess, hættu.
Svo datt mér í hug að ég gæti tekið maraþon í hverju og einu. Leggja áherslu á eitt áhugamál í 21 dag, skipta svo. Ég prófaði það. Valdi *uppáhalds* áhugamálið fyrst og lagði mig alla fram við að gefa mér tíma. Það gekk ágætlega. Það var gaman að einbeita sér svona vel að einhverju sem ég hafði gaman af. Og þá var ég ekki að pæla í hinum sem voru "í biðstöðu".
Þegar að því kom að velja næsta áhugamál til að sinna áttaði ég mig á því að mig langaði ekkert til að skipta. Ég var núþegar að sinna því sem ég hafði mestann áhuga á núna.
Þá loksins komst ég að niðurstöðu: Þó ég sleppi tökunum af áhugamáli í dag þýðir ekki að ég geti aldrei tekið það aftur upp. Flesta hluti er mjög auðvelt að eignast (og þeir þurfa ekki að vera nýjir). Færnin mun líklega ekki glatast. Ef áhuginn sprettur aftur upp seinna verður eflaust lítið mál að byrja bara aftur.
Þannig að núna loksins gat ég kvatt ýmist hannyrðadót, föndurpappír og græjur, teikniblýanta og saumadót. Bless í bili. Sjáumst kannski seinna.
Unknownnoreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2168396586400565699.post-80487579959989179772015-08-26T17:41:00.000-07:002015-09-26T17:46:35.747-07:00KonMari ferlið: Byrjun
Í júlí las ég bókina The Life-Changing Magic of Tidying: A simple, effective way to banish clutter forever eftir Marie Kondo. Þar lýsir hún aðferð til að taka til öllu dótinu sínu og losa sig við drasl og óreiðu að eilífu. Það eru aldeilis stór orð en eftir lesturinn var ég sannfærð um að hún hefði rétt fyrir sér.
Hún, Marie Kondo, segir að allt ferlið eigi að taka u.þ.b. 6 mánuði.
KonMari aðferðin gengur út á að fara í gegnum allt dótið sitt og losa sig við hvern hlut sem ekki vekur gleði hjá manni. Taka á einn flokk hluta fyrir í einu t.d. föt, safna þeim öllum saman á einn stað og meta hvern og einn. Ef þú ert ekki handviss um leið og þú tekur hann upp að hluturinn gefi þér ánægju skaltu losa þig við hann. Þannig er farið í gegnum alla hluti á heimilinu. Flokkarnir sem hún nefnir eru föt, bækur, smámunir og tilfinningalegir hlutir. Smámunir innihalda allt frá raftækjum til handklæða til bréfaklemma. Tilfinningalegir hlutir geta verið t.d. ljósmyndir, fyrstu barnaskórnir eða gamlar dagbækur.
Ef vel gengur ætti ég að vera búin um áramótin.
Ég skrifaði niður lista yfir flokkana sem ég sé á mínu heimili, þeir kannski hjálpa til fyrir þá sem vilja prófa. KonMari flokkarnir mínir
Skál fyrir upphafi hreinsunarferlisins!
Unknownnoreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-2168396586400565699.post-40604445783884957212015-07-16T05:53:00.000-07:002015-07-16T05:58:17.158-07:00Nokkrar mínimalískar leiðir til að bæta heimilið í staðinn fyrir að kaupa nýja hluti
Oft sé ég eitthvað í búð eða á netinu sem mér þykir fallegt og hugsa að ég vilji eignast það til að hafa heima hjá mér. Og stundum þegar ég hef komið heim með eitthvað nýtt sem ég var viss um að myndi vera voða fallegt - varð ég fyrir vonbrigðum því það var ekki eins fallegt heima hjá mér. Oftar en ekki var vandamálið að það var of mikið af drasli.
Því prófaði ég í staðinn fyrir að halda að fleiri og nýjir hlutir myndu gera heimilið mitt betra að fara aðra leið.
Losa sig við hluti!
Breyta til. Færa húsgögn, skipta út myndum á veggjum, snúa húsgögnum.
Þrífa sérstaklega vel.
Spila góða tónlist
Gera góða lykt t.d. með því að baka eitthvað gómsætt eða tína vellyktandi blóm úti.
Less is more
Unknownnoreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2168396586400565699.post-27965826645315804452015-07-16T05:46:00.001-07:002015-07-16T05:58:23.668-07:00Að þvo skóna sína
Í gær þvoði ég skóna mína.
Það er ekki merkilegt í sjálfu sér en ég velti því fyrir mér hvað það þýddi þar sem þetta var í fyrsta skiptið sem ég þvoði þessa næstum ársgömlu skó.
Ástæðan fyrir því að þeir voru orðnir skítugir er sú að ég nota þá næstum daglega núna. Þeir ásamt gönguskónum mínum eru einu skórnir sem ég er með í sumar. Við búum á Patreksfirði yfir sumarið vegna vinnu.
Ef ég væri heima hjá mér, með alla hina skóna sem ég á, hefði ég líklega notað aðra skó líka svo þessir hefðu ekki verið jafn mikið í notkun.
Og ég held að ef þeir hefðu orðið skítugir væri mögulegt að ég hefði frekar valið að nota aðra skó en þessa í staðinn fyrir að þvo þá.
En nú hafði ég ekki neitt annað val, ekki vil ég vera í gönguskóm alla daga.
Nokkrir sem ég þekki eiga fleiri en tvenn og fleiri en þrenn pör af strigaskóm. Ég velti því fyrir mér hvort þeir falli ekki í freistinguna að nota þá frekar hreinustu skóna, heldur en að þvo hina - og enda svo með því að kaupa sér nýja þegar þeir verða leiðir á hinum sem eru lítið notaðir og skítugir.
Mér finnst betra að eiga fátt, vel valið og hugsa vel um það.
Unknownnoreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2168396586400565699.post-34967711605589386682015-07-12T15:53:00.001-07:002015-11-16T02:26:15.711-08:00Einfaldlega betri sokkar
Einu sinni var í stöðu sem margir kannast við...
Ég átti fullt af allskonar sokkum, misgóðir, mismunandi á litinn, misvel farnir, mismikið í uppáhaldi en það sem mér fannst verst að þeir voru gjarnan óparaðir. Eftir að mínimalisma ferlið mitt hófst ákvað ég að taka á þessu máli og fylgja fyrirmynd tengdapabba. Ég gaf alla sokkana og keypti mér 12 pör af nákvæmlega eins sokkum, svarta með gylltri tá.
Lífið varð strax betra. Ég gat alltaf bara gripið næsta hreina sokk og alltaf verið í eins. Átti nógu marga til að eiga alltaf hreina en þurfti samt ekki alltaf að vera að þvo - og þeir voru ekki út um allt óparaðir.
Tíminn leið og sokkarnir byrjuðu að slitna. Ári seinna átti ég 3 sokka. Ef maður á færri flíkur eyðast þær nefnilega meira.
Þá mundi ég eftir umfjöllun um sérstaklega endingagóða og gæðamikla sokka sem heita Darn Tough. Þeir eru frá Vermont í Ameríku og hafa lífstíðar ábyrgð - þú getur alltaf skilað þeim og fengið nýja!
Ég keypti mér aftur sokka. Þeir eru frekar dýrir svo ég keypti ekki marga. Þeir eru úr merino ull sem gerir það að verkum að þeir verða síður illa lyktandi.
Í dag á ég semsagt þrenn pör af venjulegum sokkum og eina lopasokka.
Mér finnst þessi saga vera mjög lýsandi fyrir margt í ferlinu í átt að mínimalískari lífsstíl. Fyrst þarf að grisja út draslið og óþarfan.
Einfaldara líf.
Þegar maður hefur náð einfaldleikanum á sitt band hefur maður tíma til endurmeta og betrumbæta.
Betra líf.
Unknownnoreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2168396586400565699.post-32700218649537970852014-02-10T14:37:00.002-08:002014-02-10T15:02:02.643-08:00Þúsund byrjar á einum. Stór og lítil skref.
Velti því nýlega fyrir mér hvaða skref ég og við höfum tekið til að ná einfaldara og betra lífi.
Hér er stutt samantekt yfir stór og lítil skref:
losa okkur við fullt af drasli og dóti
taka þátt í project333 (nota bara 33 flíkur)
slökkva ljósin á eftir mér
búa um rúmið á morgnanna
tæmi úlpuvasa þegar ég kem inn
lyklar hanga á snaga við hliðina á hurðinni
nota oftar full-screen mode þegar ég er að læra
slökkti á facebook viðvörunum í símanum
les ekki fréttir daglega
fáum ekki dagblöðin
hlusta sjaldnar útvarp
erum ekki með sjónvarp
Öll þessi skref hafa á einn eða annan hátt stuðlað að meiri meðvitund, einfaldari hversdagsleika og aðeins rólegra lífi.
Hér eru svo nokkur markmið framundan:
lesa bók í 30+ mín á dag
stunda hugleiðslu
fara snemma að sofa (fyrir 22:30)
losa okkur við enn meira dót og drasl
ganga alltaf alveg frá eldhúsinu á kvöldin
skipuleggja tímann fyrir daginn/vikuna framundan
útbúa matseðil fyrir vikuna/mánuðinn
Hvatning að mörgu þessu er komin frá
Zenhabits, Project333 og UFYH
Unknownnoreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2168396586400565699.post-28914875141245378502013-11-12T05:35:00.002-08:002013-11-12T05:35:32.623-08:00Tvíeyki
Það gleður mig að kynna Magneu Arnardóttur sem samhöfund að þessu bloggi.
Nú getum við í sameiningu lagt á ráðin um hvað sé best að skrifa og ekki skrifa til að koma einfalda boðskapnum okkar til skila.
Double the action - double the fun.
Velkomin Magnea!
Unknownnoreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-2168396586400565699.post-32065463386622232832013-09-25T15:21:00.003-07:002013-09-25T15:21:50.460-07:00Einfaldlega betri byrjun
Eftir nokkurn velting "í maganum" hefur þessi hugmynd orðið að veruleika.
Hér er bloggið Einfaldlega betra komið í heiminn.
Hér ætla ég að segja frá leið minni og fjölskyldu minnar að einfaldari lífstíl og áhrif þess.
Kannski vilt þú gera slíkt hið sama eftir heimsókn hingað.
Kveðja,
Þórhildur
Unknownnoreply@blogger.com0